Gjaldeyris bruðl!!!

Hér um árið er olíukreppan var (þá var olíuverð mun lægra en nú) tóku forráðamenn þá skynsömu ákvörðun að öll hús skyldu hituð upp með innlendri orku.

Fróðlegt væri að vita hvort einhver hefur skoðað hvaða áhrif þessi ákvörðun hafði á okkar litla samfélag. Getur verið að einhver hagfræðingur hafi þegar skoðað það?

Hvernig stendur á því að Ísland sem telur sig hafa ofgnótt af orku hefur ekki enn sett kraft í að nýta innlenda orku á farartæki hér á Fróni heldur brennir gjaldeyri á sína fararskjóta?

Fyrir mörgum árum var hafin vetnis framleiðsla fyrir farartæki hér á landi en þrátt fyrir að innflutt orka hafi nær margfaldast frá þeim tíma hefur notkun þessarar innlendu orku lítið aukist.

Nú koma fréttir utan úr heimi sem segja að enn sé áhugi á að kanna vetnisvæðingu fararskjóta:

Fem globale bilgiganter vil gøre Danmark til brintbil-laboratorium Daimler, Toyota, Hyundai, Opel/GM og Nissan er snart klar med deres første generation af masseproducerede brintbiler og er på jagt efter et premiere-marked, hvor de nye biler kan bevise deres værd.

Hvernig stendur á því að ekkert hefur gerst í þessum málum öll þessi ár hér á Fróni?

Getur ástæðan verið sú að aðal “hvata” aðilinn var innflutningsaðilli á eldsneyti?

Eða eru það ráðamenn sem ekki vilja missa þenna ofurtekjustofn sinn sem heitir innflutt orka?

Hvað líður þá metan væðingu? Er þar líka orðin tóm?

Eða er ástæðan sú að við erum ósjálfbjarga sofandi sauðir sem bíðum þess að erlendar stóriðjur taki okkur í sína arma?

Sjálfbærni?

Hefur nokkur litið á hvaða áhrif það hafði á jafnvægi okkar samfélags við umheiminn þetta litla pennastrik pólitíkusa hér um árið að “öll” heimili skuli hitast upp með innlendri orku?
Hefur nokkrum dottið í hug hvaða áhrif það hefði á okkar samfélag meðal samfélaga þjóðanna – ef flutningatæki yrðu knúinn af innlendri orku? Hvað þá flest almenn farartæki?

Skortur á uppeldi?

Einn af mörgum góðum frösum sem ætlaðir eru væntanlegum uppeldisfræðingum hjá HÍ er:

  • Börn skulu læra að taka sínar eigin ákvarðanir og standa við þær.

Getur verið að þessi einfalda regla sem hvert samfélag ætti að vera háð – hafi ekki náð til hins háa alþingis?

Arnar þankar

Mörg eru atvik í samfélaginu sem kalla á viðbrögð.
Sum sofna strax vegna hins óvenjulega kosts okkar kjósenda – að muna ekki hvað gerðist í gær – ha hvað gær??